Makkarónubollan

febrúar 3, 2023Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir

Ég held að ég geti sagt að þetta sé mín allra uppáhalds bolla. Gamaldags makkarónur eru í miklu uppáhaldi hjá mér og voru þær því fullkomnar sem fylling í þessar geggjuðu bollur. Marsípan keimurinn gerir svo mikið með dásamlega mjúkri saltkaramellu f´ra Joe&Seph´ s og ferskum hindberjum.

Ég mæli með að þið prófið þessar, ég er nokkuð viss um að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.

Allar vörurnar fást í verslunum Hagkaupa
Prenta uppskrift

Innihald

Vatndeigsbollur

  • 3 stk egg
  • 300 ml vatn
  • 160 g hveiti
  • 150 g smjör

Fylling

  • 300 ml rjómi
  • 300 ml Millac rjómi, má nota venjulegan
  • 200 g makkarónur, þessar gömlu góðu
  • 100 g hindber
  • Joe&Seph's saltkaramella
  • flórsykur

Aðferð

Vatndeigsbollur

  • 1)

    Hitið ofninn í 180°

  • 2)

    Setjið vatn og smjör í pott. Þegar suðan er komin upp er potturinn tekinn af hitanum og hveitinu hrært saman við þar til deigið hættir að festast við hliðarnar og myndar hálfgerða kúlu.

  • 3)

    Deigið er næst sett í hrærivélaskál og hrært þar til kólnar.

  • 4)

    Þegar deigið hefur kólnað bætum við 1 eggi saman við í einu þar til þau hafa blandast vel saman við deigið.

  • 5)

    Mótið bollur með sprautupoka (líka hægt að nota skeið) á bökunarpappír og bakið við 180° í um það bil 25 mínútur. Passið að opna ekki ofnin á meðan bollurnar eru að bakast.

Fylling

  • 1)

    Við byrjum á því að mylja niður makkarónurnar.

  • 2)

    Næst stífþeytum við Millac rjómann og rjómann og hrærum makkarónunum varlega saman við.

  • 3)

    Sprautum rjómann í hring á bolluna og setjum saltkaramelluna í miðjuna.

  • 4)

    Setjum smá rjóma ofaná og röðum svo hindberjum í rjómann.

  • 5)

    Setjum flórsykur yfir bollurnar og skreytum eftir smekk.

Nutrition

Fyrri grein Næsta grein