Fullkomin Englakaka

Englakaka!
Hún hljómar jafn góð og hún er, léttir botnar og fislétt og fluffy krem. Þessi kaka samanstendur af fisléttum svampbotnum, dásamlegu kremi og ferskum berjum. Maður þarf að hafa sig allan við að smakka ekki kremið of mikið.

Prenta uppskrift

  • Undirbúningur: 30 min
  • Baksturstími: 30 min
  • Samtals: 1 klst 15 min
  • Fjöldi: 15
  • Erfiðleikastig: Miðlungs

Innihald

Englakaka

  • 475 g eggjahvítur
  • 340 g sykur
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft eða sítrónusafi
  • 1/4 tsk salt
  • 115 g Kornax hveiti
  • 2 tsk vanilludropar

Englakrem

  • 280 g eggjahvítur
  • 400 g sykur
  • 4 msk vatn
  • 7 msk síróp
  • 2 tsk vanilludropar

Annað

  • 200 g fersk jarðaber eða hindber

Aðferð

Englakaka

  • 1)

    Við byrjum á því að hita ofninn í 180°(viftu).

  • 2)

    Næst hreinsum við skálina með sítrónusafa og setjum svo eggjahvíturnar í skálina og byrjum að þeyta á hægum hraða í um það bil 30 sek.

  • 3)

    Þá bætum við vínsteinslyftiduftinu (cream of tartar)/ sítrónusafa saman við og aukum hraðann.

  • 4)

    Svo bætum við einni matskeið af sykri saman við í einu og þeytum þar til blandan er orðin stífþeytt.

  • 5)

    Þá næst tökum við skálina af hrærivélinni og foldum varlega vanilludropunum saman við með sleif.

  • 6)

    Svo sigtum við hveitið og saltið og foldum saman við í 3 skömmtum. Pössum að gera þetta mjög varlega svo að botnarnir verði ekki of þéttir.

  • 7)

    Svo skiptum við deginu í 3x 20cm. form eða 2x 26cm. Pössum að smyrja formin vel og setja bökunarpappír í botninn.

  • 8)

    Að lokum eru botnarnir bakaðir við 180° í  25-30 mínútur eða þar til kakan boppar aðeins til baka þegar við ýtum í hana.

Englakrem

  • 1)

    Við byrjum á því að setja vatn í pott og kveikja undir,  síðan setjum við stóra skál á pottinn.

  • 2)

    Næst fara öll hráefnin í skálina og við þeytum blönduna með písk þar til hún hefur ca. þrefaldast og allur sykurinn hefur leyst upp.

  • 3)

    Þá færum við þetta yfir í hrærivélaskál, bætum matarlit útí og þeytum þar til blandan hefur kólnað.

Samsetning

  • 1)

    Við byrjum á því að setja smá slettu af kremi á kökudisk/platta og svo fyrsta botninn.

  • 2)

    Síðan setjum við krem á milli og hindber/jarðaber og endurtökum svo leikinn ef við erum með 3 botna.

  • 3)

    Að lokum setjum við restina af kreminu utan um kökuna og skreytum að vild.

Eriðleikastig:

Erfiðleikastig:Miðlungs
Fyrri grein Næsta grein