Confetti bollakökur fylltar með dásamlegri súkkulaðikaramellu

Þessar bollakökur eru með þeim betri sem ég geri, létt og fullkomin vanillukaka og djúsí súkkulaðikaramella toppað með léttu vanillusmjörkremi. Tilvaldar í barnaafmælið, veisluna eða matarboðið.

Mæli sannarlega með að þið prófið þessar.

Prenta uppskrift

  • Undirbúningur: 30 min
  • Baksturstími: 35 min
  • Samtals: 1 klst 20 min
  • Fjöldi: 12-15
  • Erfiðleikastig: Auðvelt

Innihald

Confetti bollakökur

  • 265 g Kornax hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 170 g smjör
  • 300 g sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 260 g eggjahvítur
  • 200 ml mjólk
  • 45 ml olía
  • 40 g confetti sprinkels

Súkkulaðikaramella

  • 200 g sykur
  • 220 ml rjómi
  • 220 ml sýróp
  • 5 msk mjólk
  • 2 msk kakó
  • 1/2 tsk salt
  • 3 tsk smjör

Vanillusmjörkrem

  • 500 g smjör, við stofuhita
  • 500 g flórsykur
  • 4-6 msk rjómi
  • 1.5 tsk vanilludropar

Aðferð

Confetti bollakökur

  • 1)

    Við byrjum á því að stilla ofninn á 175°(viftu).

  • 2)

    Næst setjum við smjör (við stofuhita) og sykur saman í hrærivélaskál og þeytum þar til verður ljóst og létt.

  • 3)

    Svo fara eggjahvíturnar rólega saman við, lítið í einu.

  • 4)

    Næst hærum við 1/3 af þurrefnunum saman við blönduna.

  • 5)

    Svo hrærum við 1/2 af blautefnunum (mjólk, olíu og vanilludropum) saman við.

  • 6)

    Þá hrærum við næsta 1/3 af þurrefnunum saman við.

  • 7)

    Síðan restinni af blautefnunum.

  • 8)

    Að lokum fer síðasti skammturinn af þurrefnunum. Gott er að hræra degið ekki of mikið en samt nóg til þess að allt sé komið saman.

  • 9)

    Næst setjum við deigið í um það bil 2/3 af bollakökuforminu (verða 12-15 stk) og bökum við 175°í 18-20 mínútur eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni.

Vanillusmjörkrem

  • 1)

    Við byrjum á því að þeyta smjörið vel og lengi þar til það verður létt og ljóst.

  • 2)

    Næst bætum við flórsykri og vanilludropum saman við og höldum áfram að þeyta.

  • 3)

    Að lokum bætum við rjómanum saman við og þeytum í smá stund í viðbót.

Súkkulaðikaramella

  • 1)

    Við setjum öll hráefnin saman í pott.

  • 2)

    Leyfum blöndunni að sjóða þar til hún hefur þykknað, en pössum að hafa hana ekki á of háum hita svo hún brenni ekki.

  • 3)

    Þegar karamellan byrjar að þykkna tökum við hana af hitanum og setjum í eldfastmót/skál og leyfum að kólna.

Samsetning

  • 1)

    Við byrjum á því að gera gat í miðjuna á öllum bollakökunum.

  • 2)

    Síðan fyllum við í götin með súkkulaðikaramellunni.

  • 3)

    Að lokum sprautum við smjörkremi ofaná.

Eriðleikastig:

Erfiðleikastig:Auðvelt
Fyrri grein Næsta grein