Besta gulrótarkakan

Gulrótarkaka er ein af þeim kökum sem ég alltaf mjög veik fyrir. Heimilið ilmar svo vel þegar hún er í ofninum og ég tala nú ekki um hvað hún er góð. Það besta við þessa köku er að hún endist í fleiri fleiri daga á borðinu án þess að þorna.

Þessir litlu puttar biðu spenntir eftir að fá að smakka.

Ég mæli með að þið prófið þessa geggjuðu köku!

Öll Hráefnin í þessa uppskrift finnið þið í verslunum Hagkaups
Prenta uppskrift

  • Undirbúningur: 30 min
  • Baksturstími: 30 min
  • Samtals: 1 klst 20 min
  • Fjöldi: 20 manna
  • Erfiðleikastig Miðlungs

Innihald

Gulrótarkaka

  • 600 g púðusykur
  • 6 stk egg
  • 600 ml olía
  • 600 g Kornax hveiti
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 2 tsk kanill
  • 1 1/2 tsk engifer
  • 1 tsk vanilludropar
  • 600 g gulrætur
  • 200 g pekanhnetur

Smjörkrem

  • 900 g smjör, við stofuhita
  • 900 g flórsykur
  • 6-7 msk rjómi
  • 1 msk vanillu paste
  • 1 tsk vanilludropar

Rjómaostakrem

  • 350 g smjörkem
  • 350 g rjómaostur, við stofuhita

Aðferð

Gulrótarkaka

  • 1)

    Við byrjum á því að setja gulrætur í matvinnsluvél og síðan pekanhnetur.

  • 2)

    Næst hrærum við saman púðusykri, eggjum, vanilludropum og olíu í hrærivélaskál.

  • 3)

    Svo bætum við þurrefnum saman við.

  • 4)

    Síðast fara gulræturnar og pekanhneturnar saman við.

  • 5)

    Við penslum þrjú 20cm form með olíu, klippum bökunarpappír og setjum í botninn og penslum aftur yfir með olíu.

  • 6)

    Næst skiptum við deginu niður í formin, mér finnst best að vigta allt deigið fyrst og deila því svo niður í formin. Þá fáum við alla botna jafn stóra.

  • 7)

    Við bökum botnana við 170° í um það bil 25-30 mínútur eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni.

  • 8)

    Þegar botnarnir koma úr ofninum losum við hliðarnar og hvolfum beint á bökunarpappír eða kæligrind.

Smjörkrem

  • 1)

    Við byrjum á því að þeyta smjör þar til það verður létt og ljóst.

  • 2)

    Næst bætum við flórsykri, rjóma og vanilludropum saman við og þeytum þar til kremið er orðið vel ljóst og fluffy.

Rjómaostakrem

  • 1)

    Við þeytum saman smjörkremi og rjómaosti þar til allt er komið vel saman. Pössum að þeyta ekki of mikið.

Samsetning

  • 1)

    Við byrjum á því að setja smá smjörkrem á platta eða disk sem kakan á að fara á og setjum síðan fyrsta botninn ofaná.

  • 2)

    Síðan fer rjómaostakrem ofaná og næsti botn ofnaá kremið.

  • 3)

    Setjum aftur rjómaostakrem ofaná botn númer tvö og setjum síðan síðasta botninn ofaná.

  • 4)

    Næst setjum við kökuna inn í kæli og leyfum kreminu að stífna aðeins.

  • 5)

    Þegar kremið hefur stífnað á kökunni setjum við þunnt lag af smjörkremi utan um alla kökuna og setjum hana síðan aftur í kæli. Með því að gera þetta komum við í veg fyrir að fá mylsnu í kremið.

  • 6)

    Síðan setjum við aftur krem utan um kökuna og skreytum af vild.

Erfiðleikastig

ErfiðleikastigMiðlungs
Fyrri grein Næsta grein