Súkkulaðibollakökur fylltar með Bismark súkkulaði ganache
Það eru ekki allir fyrir smákökur fyrir jólin og þá mæli ég svo sannalega með að þið prófið að skella í þessar Bismark jólabollakökur. Þær eru alveg guðdómlegar!
Ég skreytti bollakökurnar með makkarónum en þið finnið uppskrift af þeim hér.
- Fjöldi: 18-24 bollakökur
- Erfiðleikastig: Auðvelt
Innihald
Súkkulaðibollakökur
- 125 g dökkt súkkulaði
- 170 ml mjólk
- 290 g púðusykur
- 105 g smjör , við stofuhita
- 2 stk egg
- 180 g Kornax hveiti
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 10 g kakó
Bismark súkkulaði ganache
- 150 g Bismark rjómasúkkulaði
- 90 ml rjómi
Vanillukrem
- 300 g flórsykur
- 300 g smjör, við stofuhita
- 3 msk rjómi
- 2 tsk vanilludropar
Aðferð
Súkkulaðibollakökur
- 1)
Við byrjum á því að hita ofninn í 175°(viftu)
- 2)
Næst setjum við súkkulaði, mjólk og ½ af púðusykrinum í lítinn pott og hitum upp að suðu á vægum hita.
- 3)
Við þeytum saman smjöri og hinum ½ af sykrinum saman og bætum síðan eggjunum varlega saman við.
- 4)
Næst hrærum við þurrefnunum varlega saman við.
- 5)
Að lokum fer heita súkkulaðiblandan í mjórri bunu saman við.
- 6)
Svo fyllum við setjum við deig í ca. 2/3 af bollakökuforminu.
- 7)
Við bökum bollakökurnar við 175° í um það bil 18 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn upp úr kökunum ef stungið er í þær.
Bismark súkkulaði ganache
- 1)
Við byrjum á því að saxa súkkulaðið í smáa bita og setjum í skál.
- 2)
Næst hitum við rjómann upp að suðu og hellum yfir súkkulaðið.
- 3)
Hrærum síðan blöndunni vel saman og leyfum henni að kólna og þykkna áður en við setjum hana í bollakökurnar.
Vanillukrem
- 1)
Við byrjum á því að þeyta smjörið vel og lengi þar til það verður létt og ljóst.
- 2)
Næst bætum við flórsykri, rjóma og vanilludropum saman við og höldum áfram að þeyta vel þar til kremið er orðið létt og ljóst.
Samsetning
- 1)
Við byrjum á því að gera göt í miðjuna á öllum bollakökunum.
- 2)
Næst sprautum við Bismark súkkulaði-ganache í gatið.
- 3)
Svo fer krem ofaná bollakökurnar og þær skreyttar að vild.
Eriðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |