Súkkulaði og hnetusmjörsbitakökur
Ég hef lengi ætlað að skella í þessar kökur en einhvernveginn frestað því endalaust. En það sem ég sé eftir því núna, því þessar kökur eru hreint og beint trylltar! Þær eru lungamjúkar í miðjunni og stökkar og góðar á endunum. Þessar á ég klárlega eftir að gera aftur og aftur…
Þær innihalda mjög mikilvægt leynihráefni sem gerir svo klárlega gæfumuninn.
Get ekki annað en mælt með að þið prófið að skella í þessar geggjuðu smákökur!!
- Undirbúningur: 25 min
- Baksturstími: 15 min
- Samtals: 45 min
- Erfiðleikastig: Auðvelt
Innihald
Súkkulaði og hnetusmjörsbitakökur
- 100 g sykur
- 230 g púðusykur
- 250 g smjör, við stofuhita
- 2 stk egg
- 250 g Kornax hveiti
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk matarsódi
- 1 pakki Royal súkkulaðibúðingur
- 60 g kakó
- 1 tsk vanilludropar
- 100 g dökkt súkkulaði, bitar eða saxað
- 200 g Reese's hnetusmjörbitar, má skipta út fyrir hvítt súkkulaði eða karamellukurl
- 4 msk mjólk, við stofuhita
Aðferð
Súkkulaði og hnetusmjörbitakökur
- 1)
Við byrjum á því að að þeyta saman smjör, púðusykur og sykur.
- 2)
Svo bætum við eggjum og vanilludropum saman við og þeytum þar til blandan verður létt og ljós.
- 3)
Næst blöndum við hveiti, salti, matarsóda, Royal súkkulaðibúðing og kakó saman við og hrærum vel saman áður en mjólkin fer síðan saman við.
- 4)
Að lokum hrærum við súkkulaðibitunum og hnetusmjörsbitunum saman við.
- 5)
Næst kælum við deigið í ískáp í klukkustund eða í frysti í 15 mínútur.
- 6)
Þegar deigið er að verða tilbúið stillum við ofnin á 175°(viftu)
- 7)
Að lokum skerum við deigið niður í jafna litla bita, rúllum kúlur og setjum á bökunarpappír.
- 8)
Við bökum kökurnar við 175°í 12-15 mínútur.
Erfiðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |