Panda ostakakan
![](https://sylviahaukdal.is/wp-content/uploads/2023/01/Copy-of-SYLVIAHAUKDAL.IS-HVITT-1.png)
Ég er nýbúin að kynnast Panda lakkrískúlunum og get með sanni að heimilismeðlimir eru orðnir háðir kúlunum!
Það kemur ykkur sennilega ekki á óvart en mínar uppáhalds eru að sjálfsöðgu bleiku Panda kúlurnar sem eru með jarðaberjabragði og var því fullkomið að blanda saman tveimur hlutum sem eru í uppáhaldi, ostakaka og bleikar Panda lakkrískúlur.
![](https://sylviahaukdal.is/wp-content/uploads/2023/01/20230127_151608-576x1024.jpg)
Panda lakkrískúlurnar koma í þremur bragðtegundum sem eru jarðaberja, lakkrís og saltkaramellu.
![](https://sylviahaukdal.is/wp-content/uploads/2023/01/20230127_151715-1-576x1024.jpg)
Ég mæli hiklaust með að þið prófið að skella í þessa geggjuðu ostaköku sem er klárlega komin í uppáhald og hefur hlotið nafnið Panda ostakakan.
![](https://sylviahaukdal.is/wp-content/uploads/2023/01/20230127_152756-576x1024.jpg)
Ég hlakka til að heyra hvað ykkur finnst um þessa.
![](https://sylviahaukdal.is/wp-content/uploads/2019/06/logo-1024x1024.png)
Aðferð
Botninn
- 1)
Við byrjum á því að setja kexið í matvinnsluvél og mylja vel niður.
- 2)
Næst bræðum við smjörið og hrærum saman við kexið.
- 3)
Smyrjum smelluform vel með smjöri og þjöppum blöndunni þétt og jafnt ofaní formið. Setjum í kæli.
Fylling
- 1)
Við byrjum á því að setja súkkulaðið, 150ml af rjóma í skál bræðum saman inn í örbylgjuofni. Hrærum svo vel saman og setjum til hliðar.
- 2)
Þeytum 500ml af rjóma.
- 3)
Hrærum rjómaostinum, flórsykri og 2/3 af súkkulaðiblöndunni saman við þeytta rjómann.
- 4)
Síðan hrærum við Panda lakkrískúlunum (smátt skorið) og jarðaberjunum (smátt skorið) vel saman við.
- 5)
Næst setjum við blönduna í formið og pössum að slétta vel toppinn, setjum svo formið í kæli í amk. 2 klst.
- 6)
Þegar kakan er orðin köld setjum við restina af súkkulaðiblöndunni yfir, ef súkkulaðið er orðið mjög þykkt er gott að setja það í örbylgjuofninn í nokkrar sekúndur til að auðveldara sé að hella því yfir.
Passa þarf að það sé ekki of heitt þegar því er hellt yfir ostakökuna. - 7)
Næst setjum við kökuna í kæli í 2 klst.
Skreyting
- 1)
Stífþeytum rjóma og setjum í sprautupoka með stút að eigin vali. Sprautum rjóma meðfram brúnunum og skreytum með Panda lakkrískúlum.