Geggjaðar vöfflur með saltkaramellusósu

Er eitthvað betra en ylvolg vaffla með þeyttum rjóma? Og ég tala nú ekki um ef það er heit saltkaramellusósa og fersk jarðaber líka!

Það er hægt að gera margar útgáfur af vöfflum og verð ég að viðurkenna að þessar tvær eru í uppáhaldi hjá mér. Önnur með þeyttum rjóma, ferskum jarðaberjum, karamellukurli og saltkaramellu.

Hin með þeyttum rjóma, Nutella, banana og karamellukurli. Ég get svo sannarlega mælt með að þið prófið þessar mjúku og dásamlega góðu vöfflur.

Öll Hráefnin í þessa uppskrift finnið þið í verslunum Hagkaups
Prenta uppskrift

  • Undirbúningur: 10 min
  • Baksturstími: 20 min
  • Samtals: 30 min
  • Fjöldi: 8-12 vöfflur

Innihald

Vöfflur

  • 2 stk egg, aðskilin
  • 420 ml súrmjólk
  • 75 ml olía
  • 200 g hveiti
  • 70 g Maizana mjöl
  • 1 msk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 3 msk sykur
  • 1/2 pakki Royal vanillubúðingur
  • 1 msk vanilludropar

Saltkaramella

  • 190 g sykur
  • 200 ml rjómi
  • 100 ml síróp
  • 1 tsk smjör
  • 1/2 tsk salt

Annað

  • Þeyttur rjómi
  • Jarðaber
  • Karamellukurl
  • Nutella
  • Banani

Aðferð

Vöfflur

  • 1)

    Við byrjum á því að aðskilja eggin.

  • 2)

    Næst hrærum við saman eggjarauðum, súrmjólk, vanilludropum og olíu.

  • 3)

    Í annarri skál hrærum við saman hveiti, lyftidufti, salti og Royal vanillubúðing.

  • 4)

    Næst blöndum við saman súrmjólkurblöndunni við þurrefnin en pössum að hafa smá kekki í blöndunni.

  • 5)

    Svo stífþeytum við saman eggjahvítur og sykur og blöndum varlega saman við deigið með sleif þar til allt er komið vel saman.

  • 6)

    Við smyrjum vöfflujárnið með smá smjöri eða olíu og bökum vöfflurnar.
    Ath. Ég notaði Belgískt vöfflujárn!

Saltkaramella

  • 1)

    Við setjum öll hráefnin saman í pott og sjóðum þar til karamellan fer að þykkna. Þá tökum við hana af hitanum og úr pottinum.
    Ath. Þetta tekur nokkrar mínútur eftir að suðan er komin upp.

Nutrition

Fyrri grein Næsta grein