Geggjaðar bananasplitt og kaffi bollur
Nú fer að styttast í bolludaginn, það kemur nú ekki bolludagur án þess að setja allavega eina nýja bolluuppksrift inn.
Að sjálfsögðu er smá leynihráefni í fyllinginnu en það er hinn splunku nýji búðingur frá Royal sem er bananasplitt með hvítu súkkulaði.
Ég mæli með að þið prófið að skella í þessu, blandan af nýja Royal búðing, smá kaffikeim, ferskum banana og saltkaramellu er alveg uppá 10.
- Undirbúningur: 30 min
- Baksturstími: 25 min
- Samtals: 1 klst 15 min
- Fjöldi: 10 stykki
- Erfiðleikastig: Auðvelt
Innihald
Vatndeigsbollur
- 3 stk egg
- 300 ml vatn
- 160 g Kornax hveiti
- 150 g smjör
Saltkaramella
- 200 ml rjómi
- 170 g sykur
- 100 ml sýróp
- 1 tsk smjör
- 1/2 - 1 tsk sjávarsalt
Banana og kaffi rjómi
- 1 pakki Royal bananasplitt með hvítu súkkulaði
- 1/2 l mjólk
- 2 msk kaffi, uppáhelt
- 700 ml Millac jurtarjómi, þeyttur
Aðferð
Vatndeigsbollur
- 1)
Hitið ofninn í 180°
- 2)
Setjið vatn og smjör í pott. Þegar suðan er komin upp er potturinn tekinn af hitanum og hveitinu hrært saman við þar til deigið hættir að festast við hliðarnar og myndar hálfgerða kúlu.
- 3)
Deigið er næst sett í hrærivélaskál og hrært þar til kólnar.
- 4)
Þegar deigið hefur kólnað bætum við 1 eggi saman við í einu þar til þau hafa blandast vel saman við deigið.
- 5)
Mótið bollur með sprautupoka (líka hægt að nota skeið) á bökunarpappír og bakið við 180° í um það bil 25 mínútur. Passið að opna ekki ofnin á meðan bollurnar eru að bakast.
Saltkaramella
- 1)
Setjum öll hráefnin í pott og sjóðum þar til karamellan byrjar að þykkna, þá tökum við hana af hitanum og leyfum að kólna. Passa þarf að fylgjast vel með karamellunni og hræra reglulega.
Banana og kaffi rjómi
- 1)
Við byrjum á það að búa til búðinginn eftir leiðbeiningum aftaná pakkanum og setum til hliðar.
- 2)
Næst stífþeytum við jurtarjómann.
- 3)
Að lokum er kaffinu, búðingnum og rjómanum blandað saman með sleif.
Samsetning
- 1)
Skerum bollurnar í tvennt og skerum niður banana í sneiðar.
- 2)
Röðum bananasneiðum í botninn á bollunni og setjum svo rjómann ofaná.
- 3)
Setjum karamellu á lokið af bollunni og skreytum að vild. Gott er að hafa karamelluna aðeins heita þegar hún er sett á.
Erfiðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |