Uppáhalds súkkulaðibitakökurnar
Ég hef prófað margar súkkulaðibitaköku uppskriftir í gegnum tíðina en get sannarlega sagt að þessi er í algjöru uppáhaldi. Það sem mér finnst vera mikilvægast er að hafa þær stökkar á hliðunum en mjúkar inní og þessar uppfylla þessi skilyrði fullkomlega.
Aðferð
Súkkulaðibitakökur
- 1)
Við byrjum á því að hita ofninn í 175°(viftu)
- 2)
Næst setjum við smjör, púðusykur og sykur í hrærivélskál og þeytum þar til verður ljóst og létt.
- 3)
Svo fara eggin og vanilludroparnir saman við.
- 4)
Næst fer hveiti, saltið og matarsódinn saman við. (passa þarf að hræra degið ekki of mikið)
- 5)
Að lokum fara súkkulaðibitarnir saman við.
- 6)
Næst rúllum við deginu í plast og setjum í kæli í 15 mínútur eða lengur.
- 7)
Eftir um það bil 15 mínútur tökum við deigið úr kæli, skerum niður í jafna bita, röðum á bökunarpappír og bökum í 8-11 mínútur.
Eriðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |