Tveggja laga ostakaka

ágúst 8, 2019Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir

Prep time: 25 min

Cook time: 3 klst

Serves: 12

Calories: Miðlungs

Prenta uppskrift

  • Undirbúningur: 25 min
  • Baksturstími: 3 klst
  • Samtals: 3 klst 25 min
  • Fjöldi: 12
  • Erfiðleikastig: Miðlungs

Innihald

Botninn

  • 300 g hafrakex
  • 240 g smjör, brætt
  • 50 g súkkulaði, saxað

Dökksúkkulaði ostafylling

  • 150 g rjómaostur
  • 200 ml rjómi, þeyttur
  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 50 g flórsykur

Hvítsúkkulaði ostafylling

  • 150 g rjómaostur
  • 200 ml rjómi, þeyttur
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 50 g flórsykur

Aðferð

Botninn

  • 1)

    Við byrjum á því að bræða smjörið og hræra súkkulaðinu saman við.

  • 2)

    Næst setjum við hafrakexið í matvinnsluvél og myljum niður.

  • 3)

    Svo hrærum við súkkulaðismjör blöndunni saman við hafrakexið.

  • 4)

    Að lokum setjum við hafrakex blönduna í hringlaga form og höfum disk eða platta undir. Mér þykir best að setja þykka plastfilmu meðfram forminu svo það sé auðveldara að ná kökunni úr forminu.

  • 5)

    Svo fer botninn inn í frysti meðan við græjum fyllinguna

Dökksúkkulaði ostasfylling

  • 1)

    Við byrjum á því að hita 50 ml. af rjóma upp að suðu og hellum yfir dökka súkkulaði og hrærum þar til að allt súkkulaðið hefur blandast saman við rjómann.

  • 2)

    Næst þeytum við  restina af rjómanum og setjum til hliðar.

  • 3)

    Svo þeytum við saman rjómaostinn og flórsykurinn. Við verðum að passa að þeyta ekki of mikið svo að rjómaosturinn skilji sig ekki.

  • 4)

    Næst hrærum við 1/2 af þeytta rjómanum varlega saman við rjómaostablönduna,  hinum 1/2 varlega saman við súkkulaðiblönduna og svo blöndum við þessu öllu varlega saman.

  • 5)

    Að lokum hellum við fyllingunni í formið og setjum í frysti meðan við græjum hvítsúkkulaði ostafyllinguna.

Hvítsúkkulaði ostafylling

  • 1)

    Sama aðferð og dökksúkkulaði fyllingin.

  • 2)

    Fyllingin fer síðan ofaná dökku fyllinguna og við sléttum vel. Setjum svo formið inn í frysti í amk. 3 klst. Svo tökum við kökuna varlega úr forminu.

Erfiðleikastig:

Erfiðleikastig:Miðlungs
Fyrri uppskrift Næsta uppskrift