Freyðivíns eftirréttur
Prep time: 3 klst
Cook time:
Serves: 6
Calories: Auðvelt
- Undirbúningur: 3 klst
- Samtals: 3 klst 10 min
- Fjöldi: 6
- Erfiðleikastig: Auðvelt
Innihald
Jarðaber
- 250 g jarðaber
- 50 ml freyðivín, ég notaði Anna Codorníu
Freyðivíns mousse
- 60 ml freyðivín, ég notaði Anna Codorníu
- 250 ml rjómi
- 300 ml Millac jurtarjómi
- 200 g hvítt súkkulaði
- 2 msk flórsykur
Hafrakexkurl
- 220 g hafrakex
- 100 g smjör
Aðferð
Jarðaber
- 1)
Við byrjum á því að skera jarðaberin niður í litla bita, setjum í skál og hellum 40 ml. af freyðivíni yfir jarðaberin.
- 2)
Leyfum að standa í amk. 2 klst. (Best er að gera þetta daginn áður)
Freyðivíns mousse
- 1)
Við byrjum á því að saxa hvíta súkkulaðið niður í litla bita.
- 2)
Næst setjum við 50 ml af rjóma og 50 ml af freyðivíni í lítinn pott, hitum upp að suðu og hellum síðan yfir hvíta súkkulaðið.
- 3)
Leyfum súkkulaðinu að bíða í 5 mínútur og hrærum svo vel saman.
- 4)
Næst stífþeytum við restina af rjómanum og jurtarjómanum ásamt flórsykrinum.
- 5)
Að lokum hrærum við súkkulaðiblöndunni, rjómanum og restina af freyðivíninu varlega saman.
Hafrakex kurl
- 1)
Við byrjum á því að bræða smjörið.
- 2)
Næst myljum við niður hafrakexið og blöndum öllu saman.
Samsetning
- 1)
Við byrjum á því að setja hafrakex kurlið í botninn á glösunum (6 glös).
- 2)
Næst fer freyðivíns mousse yfir og síðan jarðaberin.
- 3)
Svo setjum við annað lag af freyðivíns mousse og skreytum af vild.
Eriðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |