Langbesta lárperumaukið (guacamole)

Eitt af því sem er í miklu uppáhaldi hjá mér er guacamole eða lárperumauk eins og það heitir á íslensku. Það passar með svo mörgu og gerir snakkið, kexið eða taco-ið svo extra ferskt.
Ég er því mjög glöð að deila þessari uppskrift með ykkur sem maðurinn minn gerir. Þetta er einfaldlega langbesta guacamole-ið.
Aðferð
Guacamole
- 1)
Við byrjum á því að hreinsa fræin út chilli-inu og jalapeño-inu. (Ég skil alltaf aðeins eftir til að fá bragð)
- 2)
Næst setjum við rauðlaukinn, kóríander (2/3), chilli, safinn úr 1 lime og jalapeño í matvinnsuvél og maukum.
- 3)
Þá fara 2 lárperur og safinn úr hinu lime-inu, salt og olía útí og maukað vel saman.
- 4)
Næst skerum við síðastu lárperuna í grófa bita, tómatana og mangó-ið í litla bita ásamt því að saxa niður kóríanderið
- 5)
Blöndum síðan öllu saman. Pössum að mauka ekki mikið saman þar sem gott guacamole er alltaf best svolítið chunky.
Eriðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |