Hátíðar Pavlova
Það er eitthvað svo dásamlegt við að bera fram fallegan eftirrétt í matarboðinu eða veislunni. Þessi hátíðar pavlova henntar fullkomlega yfir hátíðirnar og ég mæli svo sannarlega með að þið prófið!
Aðferð
Pavlova
- 1)
Við byrjum á því að stilla ofninn á 120°(viftu).
- 2)
Tökum við sykurinn og setjum í matvinnsluvél eða notum caster sugar.
- 3)
Næst setjum við eggjahvíturnar í hrærivél og þeytum á miðlungshraða þar til hvíturnar eru orðnar léttþeyttar.
- 4)
Þegar eggjahvíturnar eru orðnar léttþeyttar bætum við sykrinum saman við einni matskeið í einu. Þegar allar sykurinn er komin saman við þeytum við blönduna á miðlungshraða þar til við finnum ekki fyrir sykrinum þegar við tökum smá á milli fingrana og nuddum saman
- 5)
Næst blöndum við hvítvínsediki, maísanamjöli og sítrónuberki saman og bætum svo útí eggjahvítublönduna þegar hún er klár. Pössum að þeyta ediksblönduna vel saman við í ca. 45 sekúndur.
- 6)
Nú teiknum við 20cm hring á bökunarpappír og setjum pavlovu deigið á miðjan hringinn og dreyfum úr
- 7)
Svo fer pavlovan inn í ofn við 120°í 90 mínútur, þegar 90 mínútur eru liðnar slökkvum við á ofninum of leyfum pavlovunni að kólna í ofninum yfir nótt.
Súkkulaði ganache
- 1)
Hitum rjómann upp að suðu.
- 2)
Hellum rjómanum yfir súkkulaði (saxað eða bita) og leyfum að standa í 1-2 mínútur áður en við hrærum því saman.
Royal jarðaberjamús
- 1)
Við byrjum á að setja rjómann, jurtarjómann og Royal jarðaberjabúðinginn í hrærivél og þeytum þar til verður stífþeytt
- 2)
Svo skerum við jarðaberin í litla bita og hrærum saman við jarðaberjarjómann ásamt sítrónusafanaum.
Samsetning
- 1)
Við byrjum á því að dreyfa úr súkkulaði ganache yfir pavlovuna.
- 2)
Næst segjum við Jarðaberjamúsina yfir og dreyfum vel úr henni, mér finnst gott að setja hana ekki alveg út á kantana heldur skilja eftir ca. 1 cm
- 3)
Að lokum skreytum við með fallegum berjum, myntu og stráum smá flórsykri yfir.