Marengskossar
Marengskossar eru eitt af því sem er dásamlega fallegt á veisluborðið á kökuna eða í matarboðið. Það er hægt að gera svo margar fallegar útfærslur á þeim og því hennta þeir við öll tilefni.
Aðferð
- 1)
Við byrjum á því að hita ofninn í 170°.
- 2)
Næst dreifum við úr sykrinum á bökunarpappír og setjum á ofnplötu.
- 3)
Þá næst fer sykurinn inn í ofn í 6-7 mínútur eða þar til hann byrjar örlítið að bráðna á endunum.
- 4)
Svo byrjum við að þeyta eggjahvíturnar og bætum sykrinum (heitum) út í smám saman. Leyfum vélinni að þeyta í ca. 5 mín. Ef þið viljið hafa marengskossana litaða myndi matarliturinn fara útí þegar sykurinn er allur kominn.
- 5)
Næst sprautum við á bökunarpappír (stráum sprinkles yfir) eða sílikonmottu og bökum við 90°(viftu) í klukkustund
Erfiðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |