10 bökunarráð sem gott er að hafa í huga
Mig langar að deila með ykkur nokkrum bökunarráðum sem mér þykir gott að vera með við hendina þegar kemur að bakstrinum.
- Gott er að hafa í huga að ef það er tekið fram í uppskrift að smjör, mjólk eða annað eigi að vera kalt eða við stofuhita er best að fylgja því, þá eru meiri líkur á sem bestum árangri í bakstrinum.
- Ef smjörið er kalt og í uppskriftinni er tekið fram að það eigi að vera við stofu hita er gott að skera það niður í teninga eða fletja það út með því að vera með smjörpappír sitthvorum megin við smjörið. Þá tekur enga stund fyrir smjörið að ná stofuhita.
- Ger geymist best í frysti til lengri tíma.
- Bökunarpappír! Best er að setja bökunarpappír neðst í kökuformin fyrir jafnari bakstur, eins er auðveldara að ná kökunni úr forminu. Mikilvægt er þó að muna að smyrja formin vel eða spreya með olíu.
- Ef þú ætlar að hylja köku með smjörkremi er best að vinna með frostna botna, þá er auðveldara að eiga við kökuna og molnar minna úr henni.
- Ef þú ert í vafa með hvort að kakan er tilbúin er gott að stinga tannstöngli í miðjuna á kökunni, ef hann kemur hreinn uppúr kökunni er kakan tilbúin.
- Ef það á að nota hnetur í uppskrift er best að rista þær, þá magnast bragðið margfalt.
- Ef á að nota súrmjólk í uppskrift er hægt að skipta henni út fyrir sýðran rjóma eða gríska jógúrt án þess að það hafi áhrif á útkomuna.
- Ef það á að vera mjólk í uppskrift og þú átt bara undarennu er gott að bæta 2 matskeiðum af smjöri við til að fá sem besta útkomu.
- Púðursykur! Til að halda púðusykri mjúkum er gott að skella 2 sykurpúðum með í pokann.