Sykur og hveitilaus frönsk súkkulaðikaka
Ég hef ekki mikið bakað sykurlaust í gegnum tíðina en það eru einstaka hlutir sem ég geri aftur og aftur. Þessi franska súkkulaðikaka er ein af þeim enda alveg guðdómlega góð!
Aðferð
Frönsk súkkulaðikaka
- 1)
Við byrjum á því að þeyta eggin þar til þau verða ljós og létt.
- 2)
Næst setjum við gervisykurinn í blender eða matvinnsluvél þar til hann verður að púðri.
- 3)
Þá þeytum við hann saman við eggin.
- 4)
Næst bræðum við súkkulaðið og smjörið saman og blöndum varlega saman við eggjablönduna.
- 5)
Að lokum hrærum við salti og möndlumjöli varlega saman við
- 6)
Svo smyrjum við formið vel og setjum bökunarpappír í botninn á forminu.
- 7)
Kakan er bökuð við 170°(viftu) í 30-35 mínútur.
- 8)
Þegar kakan er komin úr ofninum tökum við hana úr forminu og leyfum að kólna.
- 9)
Svo sigtum við kakó yfir kökuna og skreytum með berjum. Kakan er mjög góð borin fram með þeyttum rjóma.
Eriðleikastig:
Erfiðleikastig: | Auðvelt |