Uppáhalds veislutertan

Þetta er án efa mín allra uppáhalds terta. Ég smakkaði hana fyrst þegar tengamamma mín bakaði hana fyrir ferminguna mína (við Atli vorum augljóslega ekki byrjuð saman þá en foreldrar okkar eru mjög góðir vinir).
Þegar við Atli síðan byrjuðum saman fékk ég uppskriftina hjá henni og breytti fyllingunni lítilega.

Þessi kaka slær alltaf í gegn í veislum enda alveg guðdómleg. Get því sannarlega mælt með því að þið prófið þessa!

Kakan fær góða dóma frá þessum dömum.
Öll hráefnin í þessa uppskrift finnið þið í verslunum Hagkaups.
Prenta uppskrift

  • Fjöldi: 15-20
  • Erfiðleikastig: Miðlungs

Innihald

Blauttertubotn

  • 3 stk egg
  • 200 g sykur
  • 75 ml heitt vatn
  • 150 g Kornax hveiti
  • 1.5 tsk lyftiduft

Konfekttertubotn

  • 4 stk eggjahvítur
  • 140 g flórsykur
  • 140 g kókosmjöl
  • 100 g súkkulaði, saxað smátt

Súkkulaðikrem

  • 100 g eggjarauður
  • 100 g flórsykur
  • 120 g súkkulaði, brætt
  • 5 msk rjómi

Rjómasúkkulaðimús

  • 270 g rjómi
  • 200 g Millac gold jurtarjómi
  • 150 g rjómasúkkulaði

Smjörkrem

  • 700 g flórsykur
  • 700 g smjör, við stofuhita
  • 2 tsk vanilludropar
  • 5 msk rjómi

Aðferð

Blauttertubotn

  • 1)

    Við byrjum á því að stilla ofninn á 150°(viftu).

  • 2)

    Næst þeytum við saman eggin og sykurinn þar til það verður létt og ljóst.

  • 3)

    Svo bætum við heita vatninu saman við í mjórri bunum og höldum áfram að þeyta.

  • 4)

    Næst sigtum við lyftiduft og hveiti saman við og hrærum varlega með sleif þar til hveitið hefur blandast alveg saman við. Í þessu skrefi þarf að fara mjög varlega svo að botninn verði ekki of þéttur.

  • 5)

    Næst smyrjum við 20cm form með olíu/smjöri, setjum bökunarpappír í botninn og bökum við 150°í um það bil 30 mínútur eða þar til botninn er fullbakaður. Ef að botninn boppar til baka þegar lauslega er ýtt í miðjuna og pinni kemur hreinn upp úr er hann tilbúin.

  • 6)

    Þegar botninn kemur úr ofninum losum við hliðarnar og hvolfum botninum á kæligrind eða bökunarpappír.

Konfekttertubotn

  • 1)

    Við byrjum á því að stífþeyta eggjahvíturnar og flórsykurinn saman.

  • 2)

    Næst hrærum við kókosmjölinu og súkkulaðinu varlega saman við.

  • 3)

    Næst smyrjum við 20cm form með olíu/smjöri, setjum bökunarpappír í botninn og bökum við 150° í um það bil 30 mínútur eða þar til botninn er bakaður í gegn og toppurinn orðinn gullinbrúnn.
    Þegar botninn kemur úr ofninum losum við hliðarnar og hvolfum á kæligrind eða bökunarpappír og leyfum að kólna.

Súkkulaðikrem

  • 1)

    Við byrjum á því að bræða súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjum til hliðar.

  • 2)

    Næst þeytum við flórsykur og eggjarauður saman þar til það verður stífþeytt.

  • 3)

    Þá hellum við brædda súkkulaðinu saman við í mjórri bunum.

  • 4)

    Að lokum hærum við rjómanum varlega samanvið.

Rjómasúkkulaðimús

  • 1)

    Við byrjum á því að setja rjómasúkkulaðið ásamt 80 ml. af rjómanum í skál og hitum í örbylgjuofni þar til rjómin byrjar að sjóða. Þá tökum við skálina út og hrærum saman þar til það er allt blandað vel saman.

  • 2)

    Næst þeytum við restina af rjómanum og jurtarjómanum saman þar til það verður stífþeytt.

  • 3)

    Þá tökum við ca. 1/3 af rjómanum og hrærum varlega saman við súkkulaðiblönduna.

  • 4)

    Svo hrærum við varlega restinni af rjómanum saman við.

Samsetning

  • 1)

    Við byrjum á því að setja blauttertubotninn á platta.

  • 2)

    Næst setjum við smjörkrem í sprautupoka og klippum gat á pokann. Sprautum háan smjörkremhring/vegg meðfram botninum (3-4 umferðir ofan á hver aðra).

  • 3)

    Þá setjum við súkkulaðiðkremið á botninn og þar á eftir súkkulaðimúsina.

    Fyrir þá sem það vilja er gott að setja jarðaber, perur eða aðra ávexti með á milli.

  • 4)

    Næst fer konfekttertubotninn ofaná og kakan í kæli þar til smjörkremið stífnar alveg.

  • 5)

    Þegar smjörkremið hefur alveg stífnað hjúpum við kökuna með smjörkremi og skreytum að vild.

Erfiðleikastig:

Erfiðleikastig:Miðlungs
Fyrri grein Næsta grein